Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markaðssetning fyrirtækja hefur tekið miklum breytingum með tilkomu samfélagsmiðlanna en í gegnum þá hafa fyrirtæki náð að komast skrefi nær neytendum í markaðssamskiptum. Áhrifavaldar spila stórt hlutverk í markaðssetningu fyrirtækja á samfélagsmiðlum en þar deila þeir skoðunum sínum á vörum, þjónustu og vörumerkjum á hverjum degi. Áhrifavaldar þurfa að búa yfir mörgum eiginleikum en fyrst og fremst þarf trúverðugleiki þeirra að vera til staðar. Áhrifavaldar skiptast í mismunandi flokka eftir vinsældum og tegundum áhrifa. Flokkarnir eru allt frá frægum einstaklingum með milljónum fylgjenda og niður í svokallaða nanó-áhrifavalda sem deila upplifun sinni á vörum og þjónustu með litlum hópi fylgjenda. Áhrifavaldar þurfa einnig að þekkja til helstu samfélagsmiðlanna og kunna á helstu eiginleika þeirra. Helstu samfélagsmiðlarnir eru Instagram, Facebook, Youtube og Snapchat. Á þessum miðlum geta einstaklingar tengst hver öðrum, hvar sem er í heiminum, auk þess að fyrirtæki nota þá sem vettvang til þess að auglýsa vörumerki sín með meiri nákvæmni um markhópa en nokkru sinni fyrr. Miðuð markaðssetning spilar stórt hlutverk í allri markaðssetningu, þar með talið markaðssetningu með áhrifavöldum, þar sem fyrirtæki greina markaðinn, skipta honum upp og ákveða hvaða hóp sé arðbærast að leggja áherslu á. Fyrirtæki hafa hinar ýmsu kynningaleiðir til þess að eiga samskipti við viðskiptavini í gegnum kynningarráðana fimm en þar er mikilvægt fyrir fyrirtæki að beina markaðssamskiptunum sínum í sameiginlegan farveg. Aðferðafræði sem notuð var til að afla gagna fyrir ritgerðina var bæði eigindleg og megindleg. Bæði var lögð fram spurningakönnun fyrir neytendur og einnig voru tekin þrjú viðtöl við vörumerkjastjóra og áhrifavalda. Niðurstöður rannsóknar sýna að neytendur telja áhrifavalda að mestu leyti trúverðuga þegar þeir auglýsa vörur á miðlum sínum en töldu þá hafa lítil áhrif á kauphegðun sína. Rannsókn leiddi í ljós að áhrifavaldar teljast líklegir til þess að auka vægi sitt í markaðssetningu fyrirtækja í framtíðinni, eftirspurn fyrirtækja eftir áhrifavöldum er sífellt að aukast og nýjum áhrifavöldum fjölgar hratt.
Source: Skemman
Author: Bergur Leó Björnsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Domain: Social Sciences
Keywords: influencer marketing, social media marketing, influencer types, micro-influencers, nano-influencers, influencer credibility, Instagram, Facebook, YouTube, Snapchat, brand awareness, brand loyalty, customer engagement, customer retention, customer satisfaction, customer advocacy, customer service, customer feedback, customer complaints
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996597982
