Work

Stafræn fræðsla í fyrirtækjum : myndskeið sem hluti af fræðsluefni

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Grunnur að stafrænu námsefni og greinargerð eru hér lögð fram sem lokaverkefni til M.Ed. prófs. Námsefnið er sett upp sem stafrænt námskeið þar sem farið er yfir hönnun og uppsetningu á kennslumyndskeiðum og er ætlað fyrir starfsfólk fræðsludeilda fyrirtækja, skóla eða stofnanna. Rannsóknarspurningin var: „Hvernig finnst fullorðnu starfsfólki gagnlegt að nýta myndskeið þegar það bætir við sig þekkingu, eykur leikni eða vinnur með viðhorf, sem nýtast í starfi?“. Til að svara spurningunni var tilviksrannsókn notuð til að skoða hvað við vitum um fullorðið fólk sem lærir í vinnunni og hvaða aðferðir eru gagnlegar og líklegar til árangurs. Greinargerðin fjallar um niðurstöður viðhorfskönnunar á meðal starfsfólks Isavia ohf., sem var hluti þarfagreiningar og gerir grein fyrir rannsóknum og kenningum varðandi nýtingu kennslumyndskeiða, fræðslu fullorðinna og hugsmíðahyggju. Að endingu er því lýst hvernig niðurstöðurnar eru nýttar við hönnunarferli og uppsetningu námskeiðs um kennslumyndskeið. Námsefnið er sett upp út frá kenningum og rannsóknum um hugsmíðahyggju, altæka hönnun náms, vitsmunasálfræði, framsetningu stafræns námsefnis og kenningum um fullorðna námsmenn. Rannsóknir og kenningar sem fjallað er um sýna að myndskeið geti stutt verulega við nám og aukið áhuga og árangur fullorðinna í námi. Hafa þarf sérstaklega í huga að fullorðnir námsmenn þurfa að sjá tilgang með námi sínu, þeir vilja ráða ferðinni þegar þeir læra, tengja þarf námsefni við fyrri reynslu og nýta félagslega möguleika til ígrundunar. Tenging við hagnýt verkefni skilar árangri og altæk hönnun náms skilar betri heildar árangri. Hnitmiðuð myndskeið með persónulegum blæ, sem sýna raunverulegar aðstæður eru líklegri til að nýtast nemendum vel. Myndskeið auka helgun gagnvart námi og bæta námsárangur eða skila í versta falli jafn góðum árangri og aðrar kennsluaðferðir.
Source: Skemman
Author: Elín Yngvadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996706970
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10