Work

Þjónustugæði í vefverslun á B2B markaði. Hvernig hafa stafræn þjónustugæði í vefverslun Innnes áhrif á ánægju og tryggð notenda?

Year: 2025
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Stafræn þjónusta hefur á undanförnum árum orðið lykilþáttur í viðskiptum, bæði í B2B og B2C umhverfi. Með aukinni notkun tækni hefur áherslan færst frá hefðbundnum viðskiptamódelum yfir í stafrænar lausnir sem bjóða upp á sveigjanleika, skilvirkni og aðgengi. Skilningur á því hvernig notendur meta stafræn þjónustugæði getur skapað fjölmörg tækifæri fyrir fyrirtæki til að bæta upplifun, auka ánægju og styrkja tryggð notenda. Markmið rannsóknarinnar var að skilgreina víddir stafrænna þjónustugæða í vefverslun Innnes og kanna upplifun notenda af hverri þeirra. Einnig var lögð áhersla á að greina áhrif stafrænna þjónustugæða á ánægju og tryggð notenda, ásamt því að bera kennsl á tækifæri til úrbóta með tilliti til upplifunar notenda. Rannsóknin var byggð á E-SERVQUAL mælitæki Raza o.fl. (2020), sem var aðlagað að vefverslun á B2B markaði. Mælitækið byggði á spurningalista með Likert-kvarða sem var hannaður til að mæla upplifun notenda af stafrænum þjónustugæðum í vefverslun Innnes. Spurningalistinn var sendur á viðskiptavini Innnes og bárust alls 354 svör, 51,14% karlar og 47,74% konur. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að upplifun notenda á öllum gæðavíddum stafrænnar þjónustu hafi jákvæð áhrif á bæði ánægju og tryggð notenda. Víddirnar notendavænt viðmót og persónulegar þarfir voru sérstaklega áberandi. Notendavænt viðmót hafði mest forspárgildi fyrir ánægju notenda en persónulegar þarfir höfðu marktækustu áhrifin á tryggð. Þó voru ákveðnir veikleikar svo sem lægra meðalgildi í víddinni skipulag vefsíðu sem benda til þess að tækifæri séu til staðar fyrir Innnes til að bæta upplifun notenda. Rannsóknin sýnir að notendamiðuð hönnun og bætt upplifun í vefverslun eykur ánægju og tryggð notenda. Hún leggur grunn að frekari rannsóknum á stafrænum þjónustum í B2B umhverfi og dregur fram hvað fyrirtæki geta gert til að auka ánægju og tryggð notenda til lengri tíma.
Source: Skemman
Author: Helga Þorvarðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997548230
Cites: 97
Cited by:
Related to: 10