Work

„Það er ekki til neitt sem heitir töfralausn": Upplifun stjórnenda húð- og snyrtivörufyrirtækja á virkni húðvara

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar „Það er ekki til neitt sem heitir töfralausn” Upplifun stjórnenda húð- og snyrtivörufyrirtækja á virkni húðvara var að skoða hver upplifun stjórnenda húð- og snyrtivörufyrirtækja er á virkni húðvara. Rannsóknarspurningin var „Hver er upplifun stjórnenda húð- og snyrtivörufyrirtækja á virkni húðvara?”. Til þess að leita svara við spurningunni var stuðst við eigindlega rannsóknaraðferð og voru fimm viðtöl tekin við stjórnendur íslenskra fyrirtækja sem framleiða og/eða selja húðvörur. Lykilhugtök rannsóknarinnar voru öldrun og endurnýjun húðar, virkni húðvara, nýsköpun, árangur og markaðssetning. \nÞemun sem birtust höfundi í greiningarferlinu voru heilbrigði og góð umhirða húðar, falleg áferð húðar, vitundarvakning neytenda og persónuleg þjónusta leiðir til árangurs. Upplifanir stjórnenda gáfu vísbendingar um að notkun húðvara sem innihalda virk efni hafi raunveruleg áhrif á áferð og ástand húðarinnar, en virk efni í húðvörum eru talin ýta undir endurnýjun húðar með því að fjarlæga dauðar húðfrumur og ysta húðlagið af húðinni, en þar má nefna innihaldsefni á borð við ávaxtasýrur og ensím. Þar að auki benda niðurstöðurnar til þess að heilbrigt líferni og góð húðumhirða hægi á öldrunarferli húðarinnar, en að erfiðara sé að afturkalla öldrunareinkenni sem þegar eru komin fram. Stjórnendur upplifðu einnig að aukin þörf sé á hreinleika í húðvörum og að umbúðir séu umhverfisvænni. Niðurstöður gáfu einnig vísbendingar um að söluárangur húðvara byggist að miklu leyti á persónulegri þjónustu og góðri ráðgjöf, en að virkni á samfélagsmiðlum sé einnig mikilvæg. \nViðtölin voru greind með fyrirbærafræðilegri aðferð þar sem viðtölin voru greind lárétt (e. horizontalization) í þeim tilgangi að bera kennsl á sameiginlegar upplifanir viðmælenda á fyrirbærinu, en með greiningunni kom kjarninn í ljós: Virkar húðvörur eru árangursríkar í baráttunni við öldrun húðar.
Source: Skemman
Author: Jenný Sif Ólafsdóttir 1994
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997581014
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10