Work

Ábyrgð og sjálfstæði nemenda í þemaverkefni

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Að geta tekið ábyrgð á eigin námi og sýnt sjálfstæði er góður eiginleiki fyrir nemendur að tileinka sér. Í þessari ritgerð segi ég frá starfendarannsókn sem ég vann vorið 2017 og vorið 2019, en ég fór tvö hringferli í rannsókninni. Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna hvernig ég sem kennari gæti aukið ábyrgð og sjálfstæði hjá nemendum með því að breyta kennsluháttum mínum og fara í þemanám með samþættingu námsgreina. Þátttakendur voru þeir sömu í báðum hringferlum, annars vegar þegar nemendur voru í 4. og 5. bekk og hins vegar þegar þeir voru komnir í 6. og 7. bekk. Helstu rannsóknargögn voru rannsóknardagbók þar sem ég skráði allt inn sem gerðist og fór fram í kennslustundum, auk þess sem ég ræddi við rannsóknarvin minn. Í öðru lagi voru athuganir sem ég skráði niður og í þriðja lagi hljóðupptökurnar þar sem ég tók upp umræður og vangaveltur nemenda í kennslustundum. Í fjórða lagi voru það ljósmyndir þar sem ég tók myndir af verkefnum nemenda og í fimmta og síðasta lagi voru það rýnihópaviðtöl við þátttakendur. \nMeginniðurstöðurnar voru að þegar nemendur fá að láta rödd sína hljóma í skólastofunni og hafa skoðun á verkefnavali og vinnu sýna þeir mun meira sjálfstæði. Því lengra sem leið á þemaverkefnið sýndu nemendur sífellt meira sjálfstæði og ábyrgð en þeir sýndu í upphafi rannsóknar. Ég tel að þessi aðferð, þemanám með samþættingu námsgreina, hafi kennt mér mikið um hvernig ég get fengið nemendur til þess að auka sjálfstæði og ábyrgð í námi. Ég hyggst viðhalda þessari kennsluaðferð í starfi mínu í framtíðinni vegna þessa, en að auki er hún skemmtileg og fjölbreytt fyrir nemendur og kennara. Bæði nemendur og kennarar fá að kynnast öllum námsgreinum og fá að breyta til um námsumhverfi, sem er mjög gefandi.
Source: Skemman
Author: Steinunn Alva Lárusdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998373409
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10