Work

Geymsla þvagsýna fyrir bakteríuræktun : skiptir hitastig máli?

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þvagfærasýkingar eru með algengustu sýkingum sem herja á okkur mannfólkið. Miklum fjölda þvagsýna er skilað á rannsóknarstofur á degi hverjum en þó er ekki einfalt að finna leiðbeiningar á íslensku um það hvernig eigi að taka og geyma þvagsýni. Mikilvægt er að rétt sé farið að til að tryggja gæði þvagsýnanna svo rétt greining og þar af leiðandi, rétt meðferð geti farið fram. Bæði van- og ofgreiningar á þvagfærasýkingum geta haft alvarleg áhrif, vangreining getur leitt til blóðsýkingar og jafnvel dauða á meðan ofgreining og óþarfa sýklalyfjanotkun getur leitt til þess að bakteríur þrói með sér sýklalyfjaónæmi. Í þessu verkefni er skoðað hvort það hafi áhrif á bakteríuvöxt ef þvagsýni eru geymd í stofuhita í allt að sólahring. Tekin voru 15 þvagsýni sem voru látin standa við stofuhita í sólahring og svo sáð á ætisskálar 7-8 sinnum úr hverju sýni og sett í hitaskáp í 18-24 klukkustundir. Bakteríuþyrpingarnar á ætisskálunum voru taldar og ýmis tegundagreiningarpróf voru framkvæmd. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þó aukning á vexti bakteríanna virtist ekki verða fyrstu 4 klukkutímana, þá er mikilvægt að geyma þvagsýni í ísskáp til að tryggja rétta greiningu og meðferð. Lykilorð: Þvagfærasýking, þvagsýni, bakteríuræktun, stofuhiti
Source: Skemman
Author: Freydís Pétursdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010048212
Cites: 7
Cited by:
Related to: 10