Work

Hvatning fólks til líkamsræktar sem stunduð er á líkamsræktarstöðvum

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þrátt fyrir að margir hreyfi sig minna en lýðheilsusamtök leggja til hefur samfélagsleg umræða á undanförnum árum verið mikil um jákvæð áhrif hreyfingar á almenna heilsu fólks. Líkamsræktarstöðvum fer ört fjölgandi um allan heim og samhliða því er samkeppni þessara fyrirtækja að aukast. Því er mikilvægara en áður fyrir velgengni líkamsræktarstöðva að þekkja neytendur markaðarins vel, mynda sér markaðsstefnu og velja sér markhópa sem þau vilja leggja áherslu á að sinna. Ein leið til að öðlast meiri þekkingu um neytendur er að kanna hver hvatning þeirra er til að stunda líkamsrækt á líkamsræktarstöðvum. \n\tHvatning er sálfræðilegt ferli sem stjórnar, eykur og viðheldur aðgerðum eða innri þrá til að framkvæma ákveðna hegðun. Hegðun getur stjórnast af innri hvatningu og ytri hvatningu. Þegar hegðun stjórnast hvorki af innri hvatningu né ytri hvatningu er hegðunin hvatningarlaus. Hvatningarleysi leiðir yfirleitt til þess að einstaklingur hættir að hegða sér á tiltekinn hátt. \n\tMarkmið þessarar rannsóknar var annars vegar að kanna hverjir hvatar fólks eru til að stunda líkamsrækt á líkamsræktarstöðvum. Hins vegar var markmiðið að kanna hversu marga hópa er ákjósanlegt að skipta líkamsræktarneytendum niður í eftir hvatningareinkennum ásamt því að athuga lýðfræðilega eiginleika þessara hópa. \n\tÞátttakendur voru líkamsræktariðkendur líkamsræktarstöðva á öllum aldri. Notast var við megindlega aðferð, en spurningalisti sem höfundur þróaði var lagður fyrir þátttakendur. Hann fól í sér eina síju spurningu, 51 hvatningaratriði og átta bakgrunnsspurningar. Spurningalistinn var settur fram á 5 punkta likert kvarða. \n\tNiðurstöður leiddu í ljós að hvatning fólks til líkamsræktar skiptist í níu þætti. Það er félagslegan tilgang, almenna heilsu, líkamstengda þætti, áskorun og skemmtun, streitustjórnun, félagslega eftirtekt, þyngdarstjórnun, liðleika og hvatningarleysi. Klasagreining leiddi í ljós að hægt var að bera kennsl á sex hópa eftir hvatningareinkennum neytenda. Það er þeir sem vilja halda góðri heilsu og líta vel út (hópur 1), þeir sem hafa mikla hvatningu á öllum sviðum (hópur 2), þeir sem huga að líkamstengdum þáttum (hópur 3), þeir sem huga að félagslegum þörfum, skemmtun, vellíðan og leggja áherslu á liðleika (hópur 4), þeir sem huga að þyngdarstjórnun og liðleika (hópur 5) og þeir sem skortir tilgang (hópur 6). \n\tFyrirtæki á heilsu- og líkamsræktarmarkaðnum gætu nýtt niðurstöður rannsóknarinnar í bæði vöruþróun og í markaðslegum tilgangi. Niðurstöðurnar gefa góða vísbendingu um þarfir neytenda á markaðnum eftir lýðfræðilegum breytum. Þannig gætu líkamsræktarstöðvar til dæmis þróað sérútbúna hópatíma og boðið upp á viðeigandi þjónustu til að koma til móts við væntingar og þarfir þeirra sem þeir vilja leggja áherslu á að sinna með árangursríkum hætti. Ásamt því gætu líkamsræktarstöðvar þróað viðeigandi auglýsingarefni til að miðla á ákjósanlega markhópa.
Source: Skemman
Author: Kári Einarsson 1986
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010170921
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10