Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Undanfarin ár hefur tilkoma nýrrar tækni haft mikil áhrif á nýliðun og vali á starfsmönnum þegar kemur að ráðningarferlinu. Tæknin í ráðningarferlinu er fjölbreytt og má finna á flestum skrefum ráðningarferlisins. Þar helst þegar kemur að aðlögun, skimun, vali og innleiðingu umsækjanda. Ráðningarferlið fyrir komu internetsins var mjög handvirkt og tímafrekt. Með komu internetsins fóru hlutirnir að breytast, fyrst og fremst þegar kom að auglýsingum á lausum störfum. Starfsauglýsingar fóru að birtast á netinu á vefsíðum sérstaklega ætlaðar fyrir starfsauglýsingar. Þetta leiddi að fjölbreytilegri og stærri umsækjendahópum fyrir fyrirtæki. Með tímanum urðu auglýsingar á internetinu sí vinsælli, þar helst á samfélagsmiðlum, starfsmiðlunarvefsíðum og fréttaveitum. Aukning á fjölda umsækjenda leiddi til aukinnar vinnu þegar kemur að skimun einstaklinga. Kerfi eins og ATS (Applicant Tracking Systems) hefur einfaldað skimunarferlið svo yfirferð umsækjanda er einfaldari og auðveldara er að sjá hvaða umsækjendur fylla í þær kröfur sem settar voru fram í starfslýsingunni. ATS kerfið heldur utan um upplýsingar um alla umsækjendur og gerir vinnuveitandanum kleift að skoða og flokka umsækjendur með notkun leitarorða. Rafræn persónuleikapróf í formi leikvæðingar og myndabandsviðtala eru oft notuð til velja hvaða umsækjendur henti fyrirtækinu best. Myndbandsviðtölin spara tíma og minnka ferðakostnað. Leikvæðing er tiltölulega nýlegt fyrirbæri þar sem reynt er að gera ráðningarferlið skemmtilegra og leyfa umsækjendum að sýna vinnuveitendum hæfni og færni á ákveðnum sviðum með skapandi hugsun. Þegar starfsmaður hefur verið valinn er mikilvægt að innleiðing hans verði hagkvæm og snögg svo sem allra minnstar raskanir verði hjá fyrirtækinu við ráðningar. Hér hefur raf-þjálfun og raf-fóstrakerfi spilað stórum þætti. Þjálfun með sýndarveruleika hefur verið notuð í mörg ár fyrir flugþjálfun en undanfarin ár hafa fleiri geirar notast við sýndarveruleika til að þjálfa starfsmenn. Með betri tækni í sýndarveruleikanum og lækkun verðs hefur tæknin verið aðgengilegri og auðveldari í notkun. Framtíðarþróun tækninnar í ráðningarferlinu er talin vera tengd sýndarveruleika og notkun gervigreindar.
Source: Skemman
Author: Sölvi Daðason
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Employer Branding and e-HRM
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015876832
