Work

Upplifun viðskiptavina: Skiptir upplifunin virkilega máli?

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Með breyttum áherslum og kröfuharðari neytendum hefur hugtakið upplifun viðskiptavina rutt sér til rúms síðastliðin ár. Upplifun er af mörgum talin vera hinn nýi vígvöllur meðal fyrirtækja í efnahag nútímans og kappkosta þau við að skapa aðgreiningu og þar með samkeppnisforskot með sköpun jákvæðrar og sannfærandi upplifunar fyrir viðskiptavini sína. Rannsóknir síðastliðinna ára benda til að upplifun sé mikilvægur þáttur í virðissköpun viðskiptavina og stuðli að ánægðum og tryggum viðskiptavinum, sem í kjölfarið leiðir til fjárhagslegs ávinnings fyrir fyrirtæki. \nMarkmið rannsóknar var að kanna tengsl upplifunar við nokkrar af þeim mikilvægustu markaðsbreytum sem fræðin sýna að stuðli að velferð fyrirtækja þ.e. ánægja, tryggð, umtal viðskiptavina ásamt viðhorfi þeirra til vörumerkisins. Upplifun íslenskra flugfarþega var könnuð og var framkvæmd megindleg þversniðsrannsókn þar sem 619 einstaklingar svöruðu spurningalistanum. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að upplifun viðskiptavina hafði jákvæð tengsl við allar breyturnar. Upplifunin reyndist hafa jákvæðustu tengslin við tryggð viðskiptavina en einnig sterk tengsl við bæði ánægju og viðhorf til vörumerkis. Upplifunin virtist ekki vera jafn mikilvægur undanfari fyrir umtal viðskiptavina og hún reyndist gagnvart hinum breytunum. Þegar tengsl einstakra vídda upplifunar voru könnuð reyndist víddin útkomu fókus, sem snýr að markmiðamiðaðri hegðun neytenda, sú mikilvægasta gagnvart öllum breytunum. Niðurstöður rannsóknar voru að mestu í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna og ýta undir mikilvægi þess að fyrirtæki hugi að upplifun viðskiptavina sinna.
Source: Skemman
Author: Baldvin Atli Björnsson
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016034759
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10