Work

,,Mannauðsmál eru rekstrarmál” Viðhorf mannauðsfólks til gagnsemi og notkunar mannauðsmælinga

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn var markmiðið að skoða viðhorf mannauðsfólks til mannauðsmælinga og gagnsemi þeirra í fyrirtækjum á Íslandi, með áherslu á hvernig slík gögn eru nýtt til ákvarðanatöku. Mannauðsfólk notar í auknum mæli tæknilausnir, sjálfvirkni og gervigreind til að fá innsýn inn í ástand mannauðs. Rannsóknin byggði á eigindlegum viðtölum við tíu fulltrúa mannauðsdeilda sem höfðu ábyrgð á eða aðkomu að mannauðsgögnum og mannauðsmælingum. Gerð var tilraun til að nálgast fjölbreytt fyrirtæki á íslenskum markaði. Helstu niðurstöður benda til þess að fyrirtæki nýti mannauðsgögn í auknum mæli til að meta ástand, en frekar til yfirborðskenndra inngripa en til stefnumótandi breytinga. Helstu hindranir í öflun og úrvinnslu voru fólgin í meðbyr eða mótþróa stjórnenda og viðhorfi eða vantrausti starfsfólks. Aukin áhersla virðist vera á velsæld starfsfólks og aukinni gagnaöflun með tilliti til þessa, vilji er til að tryggja starfsfólki velsæld og ánægju í starfi. Skortur er á raunverulegri tengingu mannauðsgagna og rekstrarlegu samhengi. Vilji er hjá viðmælendum til þess að stuðla að skýrari tengingu þar á milli til heilla fyrir alla hagsmunaaðila.
Source: Skemman
Author: Fanney Þórisdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020641816
Cites: 58
Cited by:
Related to: 10