Work

Lyfjatengd meðferðarheldni eftir kransæðahjáveituaðgerð

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Kransæðahjáaveituaðgerð bætir horfur og dregur úr einkennum alvarlegs kransæðasjúkdóms. Til að hámarka ávinning aðgerðar fylgir ævilöng lyfjameðferð með lyfjum af flokki statína, beta – hemla og einnig hemla á renín – angíótensín – aldósterón kerfið hjá hluta einstaklinga. Ómeðferðarheldni við lyfjameðferð í kjölfar kransæðahjáveituaðgerðar hefur verið tengd við verri langtímahorfur. Markmið rannsóknarinnar voru því að kortleggja meðferðarheldni við statín, beta – hemla og RAA – hemla í kjölfar kransæðahjáveituaðgerðar, skilgreina sértæka þætti sem tengjast ómeðferðarheldni og bera saman afdrif einstaklinga eftir meðferðarheldni. \nEfni og aðferðir: Rannsóknin náði til allra 18 ára og eldri sem undirgengust kransæðahjáveituaðgerð með eða án annars inngrips á Landspítala árin 2007 – 2018, alls 1536. Unnið var með gögn úr íslenska aðgerðargrunninum sem inniheldur upplýsingar um heilsufar og lyfjanotkun fyrir og eftir aðgerð. Meðferðarheldni skilgreindist sem útleysing tveggja lyfseðla, annað hvort fyrir aðgerð og eftir 90 daga frá aðgerð eða bæði innan 90 daga og eftir 90 daga frá aðgerð. Einstaklingar sem töldust meðferðarheldnir við þrjú lyfin töldust meðferðarheldnir við kjörlyfjameðferð. Munur milli hópa var metinn með einbreytugreiningu. Fjölþátta tvíundargreining var notuð til að skilgreina þætti sem tengjast auknum líkum á ómeðferðarheldni. Lifun einstaklinga eftir meðferðarheldni var kortlögð með Kaplan – Meier lifunarriti og Cox lifunargreiningu. \nNiðurstöður: Meðferðarheldni innan tveggja ára frá aðgerð var 90,0% fyrir statín, 84,4% fyrir beta – hemla, 63,0% fyrir RAA – hemla og 54,1% fyrir öll þrjú lyfin. Áhættuþættir sem tengdust auknum líkum á ómeðferðarheldni voru hærri aldur, aukin sjúkdómsbyrði, ósæðarlokuskipti samhliða kransæðahjáveituaðgerð og ný lyfjaávísun tengd aðgerðinni. Ómeðferðarheldni tengdist ekki verri lifun eftir leiðréttingu fyrir aldri og sjúkdómsbyrði. \nÁlyktanir: Meðferðarheldni eftir kransæðahjáveituaðgerð er nokkuð góð við statín og beta – hemla en mun lakari við RAA – hemla. Sérlega ætti að huga að eftirliti með lyfjameðferð kransæðasjúkdóms hjá eldri og fjölveikum einstaklingum, þeim sem fara í kransæðahjáveituaðgerð samhliða ósæðarlokuskiptum og þeim sem fá fyrstu ávísun fyrir statíni, beta – hemli eða RAA – hemli í tengslum við aðgerð.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039242409
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10