Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: MITF, TFEB og TFE3 eru meðlimir MiT/TFE fjölskyldu umritunarþátta, prótína sem bindast stýrlum gena og virkja tjáningu þeirra. MITF er alhliða stýrill í þroskun og sérhæfingu litfruma ásamt því að stýra myndun sortukorna og myndun melaníns, litarefnis húðarinnar. Stökkbreytingar í MITF geta aukið líkur á myndun sortuæxlis og hefur MITF verið nefnt æxlisgen í sortuæxlum. TFEB og TFE3 stjórna genum sem eru nauðsynleg fyrir sjálfsát og myndun og virkni leysikorna, en TFEB og TFE3 er einnig stýrt af sveltisviðbragði. Bygging þáttanna er vel varðveitt og ásamt því að geta myndað tvenndir þá bindast þeir sömu DNA röð, svokölluðu E-boxi. Þrátt fyrir þennan skyldleika stýra MITF, TFEB og TFE3 ekki sömu genum, en hvernig sú skipting fer fram er ekki vel þekkt. Stutt TFEB formbrigði (e. isoform) sem er óháð sveltisviðbragði fannst í sortuæxlisfrumum með 5‘-RACE aðferðinni. Þessu formbrigði svipar til stutta formbrigðisins MITF-M sem finnst eingöngu í litfrumum, en auk þess fannst enn styttra MITF formbrigði í sortuæxlisfrumunum. \nVirknirannsóknir sýndu að TFEB og TFE3 geta virkjað stýril tyrosinasa gensins, sem hefur hingað til einungis verið talið undir stjórn MITF. Þær sýndu einnig að þættirnir bregðast á mismunandi hátt við breytingum á tyrosinasa stýrisvæðinu. Það gefur hugmyndir um leiðir frumunnar til að gera upp á milli þeirra. Nýlegar niðurstöður frá rannsóknarstofunni benda til þess að MITF geti einnig stýrt genum tengdum leysikornum og sjálfsáti í sortuæxlum. Með því að yfirtjá og slá niður MITF sjáum við að MITF stýrir sjálfsáts viðbragði sortuæxlafruma við svelti. Þegar MITF er hins vegar slegið út til lengri tíma aðlagast frumurnar missinum og endurvekja viðbragðið við svelti. Við þessar aðstæður eykst tjáning á TFE3, sem gæti skýrt hluta af aðlöguninni. Einnig sést aukinn fjöldi leysikorna í sortuæxla frumunum án sveltis þegar MITF hefur verið slegið út, sem gæti verið hluti af aðlöguninni. \nHlutverk MITF, TFEB og TFE3 í genastjórnun á himnubólukefi sortuæxla skarast og þeir virðast geta komið að einhverju leyti í stað hvers annars. Frekari skýringa er þörf á hlutverkum og víxlverkunum þeirra til þess að skilja betur virkni sjálfsáts í sortuæxlum, með möguleika á bættum meðferðarmöguleikum að leiðarljósi.
Source: Skemman
Author: Ásgeir Örn Arnþórsson 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Physiology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043249480
