Work

Tengsl skynjaðs siðferðis vörumerkja á matvörumarkaði við kaupáform

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Skynjað siðferði neytenda á vörumerkjum er nýlegt hugtak sem hefur lítið verið rannsakað, en siðferðisskynjun neytenda á við það hvar skynjun neytenda á siðferði myndast og hvaða merkingu neytendur leggja í hugtakið. Má því útskýra hugtakið sem það hvar viðhorf neytenda á uppsprettu sína. Skynjað siðferði er samsett úr fjórum undirvíddum: Að vera löghlýðið vörumerki, að vörumerkið virði siðferðisviðmið, að vörumerkið sé einlægt og velviljað og að vörumerkið sýni samfélagsábyrgð. \nMarkmið rannsóknarinnar sem hér birtist er að skoða siðferðisskynjun neytenda gagnvart fjórum íslenskum vörumerkjum á dagvörumarkaði og tengsl hennar við kaupáform neytenda. Megindleg rannsókn var gerð þar sem mælt var skynjað siðferði vörumerkjanna Kaffitár, MS, Góu og Brúnegg og voru þátttakendur einnig spurðir hversu líklegt þeir teldu að þeir myndu kaupa fyrrgreind vörumerki. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að skynjað siðferði hefur jákvæð áhrif á kaupáform neytenda. Erfitt er að segja til um raunveruleg tengsl skynjaðs siðferðis við kaupáform, þar sem margir aðrir þættir eiga einnig þátt við kaupáform, svo sem verð, vörumerki, gæði, bragð, fyrri reynsla og margt fleira.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053148733
Cites: 75
Cited by:
Related to: 10