Vinnutengdur lærdómur og helgun í starfi : Áhrif lærdómsumhverfis og aðferða stjórnenda í opinberu starfi
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessu rannsóknarverkefni er fjallað um stjórnendur, vinnutengdan lærdóm og helgun í starfi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða stjórnendur og upplifun þeirra af tækifærum til lærdóms í vinnuumhverfinu, lærdómsaðferðunum sem þeir nýta til að þróa starfstengda færni og helgunar þeirra í starfi. Til þess að varpa betra ljósi á áðurnefnd atriði var framkvæmd tilviksrannsókn með megindlegu sniði á stjórnendum hjá stóru sveitarfélagi á landsbyggðinni. \nRannsóknin leiddi í ljós að stjórnendurnir væru almennt jákvæðir í garð þeirra lærdómstækifæra í vinnuumhverfinu sem spurt var út í og mikill meirihluti þeirra nýtir sér ýmsar óformlegar aðferðir við að þróa starfstengda færni sína. Stjórnendurnir þróa einnig færni sína eftir formlegri leiðum og virðist sveitarfélagið standa sig vel hvað varðar þau námskeið og starfsþjálfun sem það býður upp á. Stjórnendurnir telja að fyrri menntun þeirra hafi búið þá vel undir störf sín sem stjórnendur og stór hluti þeirra hefur sjálfur frumkvæði að því að sækja sér menntun sem nýtist þeim í starfi. \nHelgun í starfi mældist há hjá þessum hópi stjórnenda og kannað var hvort tengsl mætti finna milli áðurnefndra atriða þ.e. hvort að lærdómsumhverfi og óformlegar aðferðir hefðu tengsl við helgun í starfi. Rannsóknin leiddi í ljós veika jákvæða fylgni milli lærdómsumhverfis og helgunar. Einnig kom fram sterk jákvæð fylgni milli óformlegra aðferða og helgunar og miðlungs jákvæð fylgni milli lærdómsumhverfisins og óformlegra aðferða.
Source: Skemman
Author: Sverrir Sigmar Björnsson
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7053611462
