Sjálfstjórn í námi: Tilraun til að fækka truflunum og auka afköst
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að móta aðferð til að auka einbeitingu við lestur og minnka truflanir og frestunarhegðun sem tengjast námi. Í því skyni var saminn bæklingur með leiðbeiningum og skráningarkerfi fyrir nemendur til að þau gætu fylgst með eigin lestri. Rannsóknin var byggð á hringlíkani Zimmermans (2002) um sjálfstýrðan lærdóm og Pomodoro tímastjórnunaraðferð Cirillo (2018). Í sjálfstýrðum lærdómi gerir nemandi verkáætlun, fylgist með framvindu og metur frammistöðu. Í Pomodoro aðferðinni les nemandi í 25 mínútna lotum, með 5 mínútna hléi eftir hverja lotu. Rannsóknartímabilið var sex námsdagar, þrír dagar þar sem þátttakendur skráðu gögn á eðlilegri námshegðun (grunnmæliskeið) og þrír dagar með aðferðum rannsóknarinnar (seinna tímabil). Þátttakendur framkvæmdu rannsóknina sjálfstætt heima hjá sér. Þau skráðu hversu lengi þau lásu og þær truflanir sem þau urðu fyrir meðan á lestri stóð. Einnig skráðu þau tilvik þar sem þau frestuðu því að byrja að lesa. Eftir hvern námsdag svöruðu þau matspurningum um eigin frammistöðu. Munurinn á tíma við lestur og innri truflanir á milli tímabila var ómarktækur. Frestunarhegðun lækkaði á seinna tímabili rannsóknarinnar, en munur var ekki marktækur. Þátttakendur greindu frá marktækt minni ytri truflunum og betra mati á eigin frammistöðu á seinna tímabili rannsóknar. Þetta bendir til þess að þó allar tilgátur hafi ekki staðist þá hafi bæklingurinn mögulega haft einhver áhrif, og gæti jafnvel sýnt fram á góðar niðurstöður ef rannsóknartímabilið væri lengra og úrtakið stærra.
Source: Skemman
Authors: Bjarni Valur Guðmundsson, Viktor Orri Eyþórsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062065452
