Work

Markaðssetning íslensks tónlistarfólks

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Markmið verkefnis þessa var að kanna aðferðir tónlistarfólks á Íslandi til markaðssetningar og vörumerkjastjórnunar. Var til þess notuð rannsóknarspurningin: „Hvaða aðferðir notar tónlistarfólk til þess að koma sér á framfæri á Íslandi?“. \nViðfangsefnið var nálgast með aðferðum vörumerkjastjórnunar. Gengið var út frá því að tónlistarfólk sé hægt að skilgreina sem vörumerki. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru hálfopin viðtöl með hjálp hálfopins viðtalsramma við þrjá þekkta tónlistarmenn á Íslandi. \nHelstu niðurstöður voru þær að viðmælendur voru meðvitaðir um mikilvægi markaðssetningar en nýttu sér hana engu að síður takmarkað. Viðmælendur skilgreindu markhópa sína. Þeir byggðu skilgreininguna frekar á því hver keypti tónlistina, en virtust ekki hafa ákveðið fyrirfram hvaða hóp herja skyldi á. Allir höfðu viðmælendur sterka skoðun á ímynd sinni, en tengdu hana ekki við vörumerkjavirði sitt. Tengingar annarra (e. secondary association) voru notaðar, bæði til að auka virði sitt og með frægum talsmönnum (e. celebrity endorser).
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067461861
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10