Work

Upplifun hjúkrunarfræðinga á fyrsta greiðslutengdu frammistöðumatinu á Landspítalanum

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Útdráttur \nMarkmið mannauðsstjórnunar er að skapa samkeppninshæfan vinnustað með yfirburða starfsfólki með mestu hæfnina. Mikil þróun hefur orðið innan mannauðsstjórnunar síðustu áratugi, allt frá hefðbundnu starfsmannahaldi yfir í stefnumiðaða mannauðsstjórnun. Frammistöðumat er einn hluti frammistöðustjórnunar en það metur styrkleika og veikleika starfsmanna og er yfirleitt framkvæmt árlega. Markmiðið með því er að hafa áhrif á atferli starfsfólks og tilgangurinn er að kanna hvort það geti náð meiri árangri í framtíðinni, þannig að starfsfólkið, skipulagsheildin og þjóðfélagið njóti góðs af. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða upplifun hjúkrunarfræðinga af fyrsta greiðslutengda frammistöðumatinu sem framkvæmt var á Landspítalanum haustið 2016. \nRannsóknin var eigindleg og fólst í því að tekin voru viðtöl við ellefu hjúkrunarfræðinga sem störfuðu á átta mismunandi deildum Landspítalans. Helstu niðurstöður benda til þess að upplifun hjúkrunarfræðinga á frammistöðumatinu hafi verið sú að matið hafi verið of huglægt og að persónuleg tengsl við deildarstjóra hefðu haft áhrif á niðurstöðu matsins. Þeir hjúkrunarfræðingar sem upplifðu matið á neikvæðan hátt höfðu fengið stuttan tíma í frammistöðuviðtalinu og litla endurgjöf. Allir hjúkrunarfræðingarnir voru sammála því að það skipti meira máli að fá störf sín metin heldur en að fá greiðslu. Hvað varðar kynningu á frammistöðumatinu þá höfðu flestir hjúkrunarfræðingar fengið kynningu á því, en það virtist sem svo að þeim væri ætlað að afla sér aukinnar vitneskju um efnið sjálfir. Í ljós kom framkvæmd matsins var ólík milli deilda spítalans og voru allir viðmælendur sammála mikilvægi þess að samræmi ríkti í framkvæmd matsins milli deilda og stjórnenda. \nÞað skiptir máli að þetta sé gert eins á öllum deildum en ósamræmi í frammistöðumati getur haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. Hvað varðar hvatningu, tryggð og starfsánægju þá kom það í ljós að þeir sem upplifðu frammistöðumatið á neikvæðan hátt fundu að þetta hafði neikvæð áhrif á starfsánægju þeirra, fundu ekki fyrir hvatningu og hugsuðu jafnvel um að hætta störfum. Það er mikilvægt að fara vel yfir frammistöðumatið. Hjúkrunarfræðingarnir vildu fá góðan tíma til að fara yfir matið og endurgjöf sem byggð var á uppbyggilegan hátt. Persónuleg tengsl við deildarstjóra hafði áhrif á niðurstöður en flestir hjúkrunarfræðingarnir fundu fyrir þessu eða óttuðust þennan þátt. Að vera metinn að verðleikum skipti mun meira máli heldur en að fá greiðslu. Þættir matsins þurfa að vera mælanlegir og matið má ekki vera byggt á persónulegum skoðunum deildarstjóra.
Source: Skemman
Author: Björg Maríanna Bernharðsdóttir 1972
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071872902
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10