Work

Does BMP9 have biphasic effects on endothelial cells?

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Meðgöngueitrun er meðgöngusjúkdómur sem hefur áhrif á móður og fóstur. Orsök sjúkdómsins er sú að innrás cytotrophoblastar frá fóstrinu í skrúfslagæðar móður mistekst. Þetta veldur því að æðar móðurinnar haldast þröngar og með mikilli mótstöðu sem leiðir til ófullnægjandi blóðflæðis um fylgju til fósturs. Breyting í þáttum sem hvetja æðamyndun (e. angiogenic factors) gegnir meinafræðilegu hlutverki í fylgjunni því breytingin veldur ástandi þar sem að æðamyndun er bæld (e. antiangiogenic state). \nBone morphogenetic proteins (BMPs) eru vaxtarþættir sem tilheyra Transforming Growth Factor β (TGFβ) fjölskyldunni. ALK1 er viðtaki sem er tjáður á æðaþelsfrumum. BMP9 og BMP10 bindast ALK1 með mikilli sækni og eru mikilvægir þættir þegar kemur að virkni æðaþelsins. Frumur verða fyrir miklum áhrifum frá innri og ytri þáttum í nærumhverfi sínu. Nærumhverfið í fylgjunni samanstendur meðal annars af þáttum sem mynda utanfrumuefnið og er seytt af frumunum sjálfum, líkt og Epidermal Growth Factor-Like domain 7 (EGFL7) og Lysyl oxidases (LOX). Fyrirliggjandi gögn rannsóknarhóps Guðrúnar Valdimarsdóttur benda til þess að EGFL7 sé markgen BMP9/ALK1 boðferilsins og að, í gegnum þennan feril, hafi BMP9 jákvæð áhrif á æðamyndun. \nMarkmið verkefnisins er að rannsaka áhrif BMP9 á tjáningu gena sem taka þátt í æðamyndun og að athuga pípulega myndun æðaþelsfrumna. Einnig verður athugað hvort æðaþelsfrumur hafi áhrif á frumuskrið trophoblasta í samhengi við mögulegt samspil þessara mismunadi frumugerða í fylgjumyndun.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6999769751
Cites: 29
Cited by:
Related to: 8