Work

Samanburður á viðhorfi, ímynd og vörumerkjavitund neytenda til vörumerkja lágvöruverðsverslana annars vegar og vörumerkja útivistarfatnaðar hins vegar

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í lokaverkefni þessu var kannað hvernig viðhorf, ímynd og vörumerkjavitund er mismunandi á milli vörumerkja lágvöruverðsverslana annars vegar og vörumerkja útivistarfatnaðar hins vegar. Til að skoða mismun á vörumerkjum þessara ólíku geira voru valin tvö vörumerki úr hvorum geira fyrir sig og þau greind. Einnig var kannað hvort munur væri á viðhorfi, ímynd og vörumerkjavitund innan sama geira og hvernig staðfærsla vörumerkjanna skilaði sér inn í huga neytenda, það var gert út frá bakgrunnsbreytunum kyni, aldri og menntun. Rannsóknin var meðal annars gerð með vörumerkjarýni (Collins, 2002). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þátttakendum datt helst í hug vörumerkin Bónus (62,4%) og Krónan (11%) þegar hugsað var til vörumerkja lágvöruverðsverslana. Flestum þátttakendum datt helst í hug vörumerkin 66°Norður (46,8%) og Cintamani (20,6%) þegar þeir hugsuðu til vörumerkja útivistarfatnaðar. Þessi fjögur vörumerki, Bónus, Krónan, 66°Norður og Cintamani voru einmitt þau sem rannsakendur ákváðu að greina. Helsti munur á viðhorfi, ímynd og vörumerkjavitund á milli geiranna tveggja, sást á því að vörumerki útivistarfatnaðar voru frekar tengd við gæði, kröfur og hátt verð. Vörumerki lágvöruverðsverslananna voru frekar tengd við lág verð, góða ímynd, peningana virði, traust, breitt vöruúrval og góða reynslu af vörumerkinu. Þegar bakgrunnsbreyturnar kyn og menntun voru skoðaðar kom í ljós að ákveðnir menntunar hópar sækjast í ákveðin vörumerki, sem aðrir menntunar hópar eru lítið fyrir. Í vörumerkjum útivistarfatnaðar var mestur munur innan þess hóps sem lokið hafði grunnskólamenntun, en þar svöruðu karlar þveröfugt við konur. Karlar með grunnskólamenntun völdu frekar 66°Norður en konur með grunnskólamenntun völdu heldur Cintamani. Í vörumerkjum lágvöruverðsverslana var mesti munurinn meðal þeirra sem lokið höfðu grunnnámi í háskóla. Í þeim hópi völdu allir karlarnir, fyrir utan einn, Bónus. Konur völdu Bónus oftar en Krónuna en svör þeirra voru mun dreifðari en karlanna. Því má álykta að val kynjanna sé ólíkt eftir mismunandi menntun.
Source: Skemman
Authors: Aldís Eva Kristjánsdóttir 1991, Sara Björk Purkhús 1991
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005732005
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10