Work

Kostir og gallar stafrænnar markaðssetningar í samanburði við hefðbundnar leiðir.

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í gegnum árin hafa markaðsaðilar notað hefðbundna markaðssetningu sem markaðstól en með tilkomu stafrænnar markaðssetningar og hafa þessi markaðstól tekið miklum breytingum. Stafræn markaðssetning hefur vaxið gríðarlega í vinsældum undanfarin ár og orðið grundvallarþáttur í markaðsáætlunum fyrirtækja vegna hversu auðveld gagnaöflun og miðlun upplýsinga eru, vegna hagkvæmni stafrænnar markaðssetningar og fjölbreytileika hennar. Skýrsla þessi leitast eftir að gefa lesendum leiðbeinandi tilmæli um hverjir árangursþættirnir eru við stafræna markaðssetningu, kanna kosti og galla hennar og bera hana saman við hefðbundnar leiðir. Viðskiptaumhverfið hefur breyst verulega síðan internetið var fundið upp. Vöxtur netsins hefur gefið fyrirtækjum nýjan vettvang til að koma skilaboðum til neytenda og viðskiptavina sinna. Aðferðferðarfræðin sem notuð var til gagnaöflunar fyrir ritgerðina var megindleg. Lögð var fram spurningarkönnun fyrir neytendur á vefforritinu QuestionPro og dreift á samfélagsmiðlum. Niðurstöður sýna að neytendur notast meira við stafræna miðla fremur en hefðbundna miðla og eru ályktanir dregnar fram við rannsókn ritgerðar að stafræn markaðssetning sé skilvirkari og hagkvæmari leið en hefðbundin markaðssetning.
Source: Skemman
Author: Jónas Breki Svavarsson
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001454115
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10