Viðhorf til markaðssamskipta gegnum áhrifavalda á samfélagsmiðlum og áhrif þeirra á kauphegðun neytenda
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Þróun á stafrænni markaðssetningu hefur aukist til muna og er ein helsta ástæða þess aukning notenda á Veraldarvefnum. Í kjölfar þess hefur markaðssetning tekið breytingum á síðustu árum og fela þær breytingar meðal annars í sér að fyrirtæki séu í auknum mæli að víkja frá hefðbundnum markaðsleiðum og vilja reyna á þau markaðstækifæri sem standa til boða á samfélagsmiðlum. Vegna þess hvernig samfélagsmiðlar hafa auðveldað fólki öll samskipti þurfa fyrirtæki í enn ríkari mæli en áður að huga vel að viðhorfum neytenda til fyrirtækisins og vörumerkja þess. \nRitgerð þessi er 12 ECTS eininga lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið byggir á rannsókn og var markmiðið að greina hvort breytingar eigi sér stað á áhrifamætti markaðssamskipta gegnum áhrifavalda ef fleiri en einn áhrifavaldur kynnir sömu skilaboð á sama tíma. Einnig var kannað hver viðhorf neytenda væru til þessarar tilteknu vöru/þjónustu. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð í formi djúpviðtala, sem tekin voru við tíu ungar konur. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrifamáttur markaðssamskipta getur orðið fyrir breytingum, eftir því hversu mikill fjöldi áhrifavalda auglýsir sömu vörur á sama tíma. Enn fremur leiddu niðurstöður í ljós að viðhorf þátttakenda til áhrifavaldamarkaðssetningar almennt sé fremur jákvætt. Þegar margir áhrifavaldar auglýsa sömu vörur eða þjónustu á sama tíma verður viðhorfið hins vegar töluvert neikvæðara.
Source: Skemman
Authors: Kamila Dabrowska 1994, Soffía Dögg Andradóttir 1995
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025043337
