Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Lípóprótín eru einingar samsettar úr vatnsfælnum lípíðum og sérhæfðum prótínum, sem flytja lípíðin með blóði um líkamann. Lípóprótín flokkast eftir eðlisþyngd eða þéttleika þeirra, samanber háþéttni lípóprótín (HDL) og lágþéttni lípóprótín (LDL). Lípóprótínið HDL flytur kólesteról frá vefjum líkamans til lifrar og hár styrkur kólesteróls í HDL er talinn hafa verndandi áhrif gegn kransæðasjúkdómi. LDL flytur kólesteról til vefja og hefur hár styrkur LDL reynst hafa forspárgildi um hjarta- og æðasjúkdóma. LDL ásamt lípóprótínum öðrum en HDL eiga það sameiginlegt að flytja kólesteról til vefja líkamans að lifur undanskilinni. Heildarstyrkur kólesteróls í LDL ásamt lípóprótínum öðrum en HDL kallast non-HDL kólesteról. Styrkur non-HDL kólesteróls er talinn endurspegla magn kólesteróls sem bundið er þeim lípóprótínum sem ýta undir hjarta-og æðasjúkdóma. \nMarkmið rannsóknarinnar var að kanna sambandið milli non-HDL kólesteróls og kransæðasjúkdóms og kanna hvort heildarstyrkur kólesteróls í non-HDL hafi meira forspárgildi varðandi kransæðasjúkdóm en kólesteról styrkur í LDL. Fengin voru gögn úr áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (REFINE-Reykjavik study). Gögnin voru úr tveimur hópum karlmanna á aldrinum 50 til 60 ára, hópi kransæðasjúklinga (n = 81) og viðmiðunarhópi (n = 81). Einþátta aðhvarfsgreining var gerð á lípóprótínunum til að bera saman forspárgildi þeirra fyrir kransæðasjúkdóm. Fjölþátta aðhvarfsgreining var gerð með ,,stepwise forward“ vali á öllum breytum til að finna það módel sem best forspárgildi hafði fyrir kransæðasjúkdóm. Módelið sýndi að hár líkamsþyngdarstuðull (BMI), hár styrkur non-HDL kólesteróls, lágur styrkur HDL kólesteróls og reykingar höfðu forspárgildi fyrir kransæðasjúkdóm. Niðurstöðurnar styðja fyrri rannsóknir að non-HDL kólesteról hafi meira forspárgildi fyrir kransæðasjúkdóm heldur en LDL kólesteról.
Source: Skemman
Author: Hulda Vilhjálmsdóttir 1996
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Cardiology and Cardiovascular Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: non-HDL cholesterol, LDL cholesterol, coronary artery disease, cardiovascular risk, lipoproteins, HDL cholesterol, total cholesterol, cardiovascular risk prediction, dyslipidemia, hypercholesterolemia, dyslipidemia screening, dyslipidemia management, statins, fibrates, nicotinic acid, ezetimibe, PCSK9 inhibitors, lifestyle modification
Open Access status: green
Funder: Hjartavernd
OpenAlex ID: W7030361110
