Snapchat - nýtt markaðstól fyrirtækja? Viðhorf fólks til kostaðra umfjallana áhrifavalda á Snapchat
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessari rannsókn voru skoðuð viðhorf fólks til kostaðra umfjallana áhrifavalda á samskipta- og samfélagsmiðlinum Snapchat, og kannað hvort fólk telji að kostaðar umfjallanir áhrifavalda hafi áhrif á traust í garð áhrifavaldsins og trúverðugleika hans. \nMeð aukinni tækni og notkun samfélagsmiðla hefur áhrifavöldum fjölgað og hafa fyrirtæki í auknum mæli farið að notast við áhrifavalda í markaðssetningu sinni. Í kjölfarið hefur kostuðum umfjöllunum fjölgað, en þar er átt við þær umfjallanir þar sem áhrifavaldar fá annaðhvort peningagreiðslur eða einhvers konar þóknanir fyrir að fjalla um vörur eða þjónustu fyrirtækja. Rannsóknir hafa verið gerðar á umfjöllunum þekktra bloggara og sýna niðurstöður þeirra að almennt eru viðhorf í garð kostaðra umfjallana neikvæð. Kostaðar umfjallanir geta því leitt til þess að fólk missi traust til fyrirtækja, vörumerkja og vara. Þessar niðurstöður vöktu athygli höfundar og vildi hann athuga hvort sömu niðurstöður gætu átt við kostaðar umfjallanir áhrifavalda á Snapchat. Megindleg aðferðafræði var notuð við gagnaöflun og var mælitækið í formi rafræns spurningalista. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðhorf þátttakenda til kostaðra umfjallana áhrifavalda á Snapchat er almennt jákvætt þótt ekki sé um afgerandi jákvæð viðhorf að ræða. Þátttakendur voru einnig sammála um mikilvægi þess að áhrifavaldar taki það fram ef um kostaðar umfjallanir sé að ræða, hvort sem það er í gegnum gjafir eða peningagreiðslur frá fyrirtækjum. Trúverðugleiki umfjallana á það til að skerðast séu þær kostaðar en þær niðurstöður stangast á við þá staðreynd að þátttakendum finnst eðlilegt að áhrifavaldar fái gjafir eða peningagreiðslur frá fyrirtækjum fyrir umfjallanir sínar á Snapchat-aðgangi sínum.
Source: Skemman
Author: Sara Ósk Káradóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7052457069
