Ræður hugur hálfum sigri? Rannsókn á fyrirtækjahollustu og tengslum hennar við starfshegðun
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Framkvæmd var rannsókn til að kanna fyrirtækjahollustu (e. Organizational commitment) meðal starfsmanna hjá þremur íslenskum skipulagsheildum. Áhersla var lögð á að skoða mismunandi birtingarmyndir af fyrirtækjahollustu þar sem erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að hugtakið sé í eðli sínu margþætt. Notast var við þriggja þátta hollustulíkan John P. Meyers og Natalie J. Allen (1991) sem nefnist Three-Component Model (TCM), en það byggir á kenning þeirra um þríþætta fyrirtækjahollustu. Hollustuþættirnir þrír eru tilfinningabundin hollusta (e. affective), stöðubundin hollusta (e. continuance) og skyldubundin hollusta (e. normative). TCM spurningalistinn var þýddur úr ensku yfir á íslensku og forprófaður áður en hann var sendur út á þátttakendur. Úrtakið afmarkast við 580 starfsmenn og var svarhlutfall 61%. \n \nMeginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig starfsmenn tengjast fyrirtækinu eða stofnuninni sem þeir starfa hjá ákveðnum hollustuböndum og hvaða áhrif slík tengsl hafa á tvær gagnstæðar birtingarmyndir af vinnusemi, helgun í starfi (e. work engagement) og vinnufíkn (e. workaholism). Til að fá samanburð við nýlegar íslenskar rannsóknir á fyrirtækjahollustu voru tengsl hollustuþáttanna við lýðfræðilegar breytur einnig könnuð. Niðurstöðurnar benda til þess að kyn, aldur og starfsaldur þátttakenda hafi tengsl við hollustuþættina. Að fordæmi erlendra rannsókna voru skilgreindar sex ólíkar samsetningar af hollustuþáttunum, svonefndir hollustuprófílar (e. commitment profiles). Ekki reyndist vera marktækur munur á vinnufíkn á milli ólíkra hollustuprófíla. Aftur á móti var marktækur munur á helgun í starfi á milli hollustuprófíla. Helgun í starfi reyndist vera mest meðal starfsmanna sem tilheyra hollustuprófíl með samspili af ríkjandi tilfinninga- og skyldubundinni hollustu. Heilt á litið benda niðurstöðurnar til þess að það geti verið villandi að skoða aðeins hvern hollustuþátt fyrir sig þar sem samspil allra þriggja þáttanna virðist gefa betri mynd af tengslum þeirra við hugarfar starfsmanna og starfshegðun. \nLykilorð: Viðskiptafræði, Fyrirtækjahollusta, Hollustuprófílar, Helgun í starfi, Vinnufíkn, Hugarfar starfsmanna, Starfshegðun, Starfsánægja, Auðlindasýn, Innri styrkur fyrirtækja
Source: Skemman
Author: Elísabet Ósk Ágústsdóttir 1981
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: organizational commitment, three-component model of organizational commitment, affective commitment, continuance commitment, normative commitment, work engagement, workaholism, job satisfaction, organizational culture, organizational development, organizational communication, organizational control, organizational effectiveness, organizational innovation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062050107
