Áhrif blóðflagna á sérhæfingu og virkni T-stýrifrumna og Th17 verkfrumna
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Jafnvægi í starfsemi ónæmiskerfisins er mikilvægt í vörnum okkar gegn utanaðkomandi hættum eins og sýklum, krabbameini og komið í veg fyrir ýmsa sjálfsónæmissjúkdóma. T-stýrifrumur taka virkan þátt í að viðhalda jafnvægi ónæmiskerfisins með því að bæla niður óþarfa ræsingu annarra frumna þar á meðal ræsingu Th17 verkfrumna. Markmið verkefnisins er að kanna hvort blóðflögur hafi áhrif á sérhæfingu T-stýrifrumna og Th17 verkfrumna og hvort þau ýti undir bólguhamlandi eða bólguhvetjandi virkni þeirra. Óreyndar CD4+ T-frumur voru einangraðar úr blóði og virkjaðar undir annaðhvort T-stýrifrumu eða Th17 ráðandi aðstæðum með eða án blóðflagna. \nNiðurstöður leiddu í ljós að blóðflögur auka verulega á sérhæfingu T-stýrifrumna bæði af CD4+/CD25hi/FoxP3+ og CD4+/CD25+/FoxP3+/PD-1+ (p<0.001) við hvattar T-stýrifrumu aðstæður, en ekki við hefðbundin almenn ræsingar skilyrði (CD3/CD28 miðluð). Athyglisvert var að einnig stuðluðu blóðflögur til sérhæfingar svipgerðarinnar CD4+/CD25+/FoxP3+/IL-6+ við T-stýrifrumu hvattar aðstæður (p<0.001). Hins vegar þegar áhrif blóðflagna á sérhæfingu Th17 verkfrumna var metin kom í ljós að þær stuðla að sérhæfingu IL-17+ T-frumna eingöngu við hlutlaus/hefðbundin ræsingar skilyrði, en ekki í T-stýrifrumu hvöttu umhverfi (p<0.05). Ítarlegar boðefnamælingar leiddu í ljós að tilvist blóðflagna dró úr framleiðslu IL-1R, undir hlutlausum ræsingar skilyrðum. Einnig minnkaði framleiðsla bólguþáttanna IL-1 og IL-8 við T-stýrifrumu hvattar aðstæður við tilvist blóðflagna. Samhliða leiddu slíkar aðstæður til aukinnar framleiðslu bólguhemjandi boðefnisins IL-10. Við sömu aðstæður jókst framleiðsla flökkuboðanna CCL2 og CCL3. \nNiðurstöðurnar benda því til þess að blóðflögur geti haft afgerandi áhrif á sérhæfingu og virkni T-stýrifruma og að einhverju leiti virkni annarra T-virkni fruma. Megin áhrifin benda frekar til bólgu hjaðnandi áhrifa blóðflagna, en frekari rannsókna er þörf til að kortleggja með nákvæmari hætti ofangreind áhrif. Ofangreindar niðurstöður benda því sterklega til þess að blóðflögur hafi mikilvægu hlutverki að gegna í mótun ónæmissvars, sérstaklega þegar kemur að jafnvægis stýringu mismunandi ræsingarferla. \nJafnvægi í starfsemi ónæmiskerfisins er mikilvægt í vörnum okkar gegn utanaðkomandi hættum eins og sýklum, krabbameini og komið í veg fyrir ýmsa sjálfsónæmissjúkdóma. T-stýrifrumur taka virkan þátt í að viðhalda jafnvægi ónæmiskerfisins með því að bæla niður óþarfa ræsingu annarra frumna þar á meðal ræsingu Th17 verkfrumna. Markmið verkefnisins er að kanna hvort blóðflögur hafi áhrif á sérhæfingu T-stýrifrumna og Th17 verkfrumna og hvort þau ýti undir bólguhamlandi eða bólguhvetjandi virkni þeirra. Óreyndar CD4+ T-frumur voru einangraðar úr blóði og virkjaðar undir annaðhvort T-stýrifrumu eða Th17 ráðandi aðstæðum með eða án blóðflagna. \nNiðurstöður leiddu í ljós að blóðflögur auka verulega á sérhæfingu T-stýrifrumna bæði af CD4+/CD25hi/FoxP3+ og CD4+/CD25+/FoxP3+/PD-1+ (p<0.001) við hvattar T-stýrifrumu aðstæður, en ekki við hefðbundin almenn ræsingar skilyrði (CD3/CD28 miðluð). Athyglisvert var að einnig stuðluðu blóðflögur til sérhæfingar svipgerðarinnar CD4+/CD25+/FoxP3+/IL-6+ við T-stýrifrumu hvattar aðstæður (p<0.001). Hins vegar þegar áhrif blóðflagna á sérhæfingu Th17 verkfrumna var metin kom í ljós að þær stuðla að sérhæfingu IL-17+ T-frumna eingöngu við hlutlaus/hefðbundin ræsingar skilyrði, en ekki í T-stýrifrumu hvöttu umhverfi (p<0.05). Ítarlegar boðefnamælingar leiddu í ljós að tilvist blóðflagna dró úr framleiðslu IL-1R, undir hlutlausum ræsingar skilyrðum. Einnig minnkaði framleiðsla bólguþáttanna IL-1 og IL-8 við T-stýrifrumu hvattar aðstæður við tilvist blóðflagna. Samhliða leiddu slíkar aðstæður til aukinnar framleiðslu bólguhemjandi boðefnisins IL-10. Við sömu aðstæður jókst framleiðsla flökkuboðanna CCL2 og CCL3. \nNiðurstöðurnar benda því til þess að blóðflögur geti haft afgerandi áhrif á sérhæfingu og virkni T-stýrifruma og að einhverju leiti virkni annarra T-virkni fruma. Megin áhrifin benda frekar til bólgu hjaðnandi áhrifa blóðflagna, en frekari rannsókna er þörf til að kortleggja með nákvæmari hætti ofangreind áhrif. Ofangreindar niðurstöður benda því sterklega til þess að blóðflögur hafi mikilvægu hlutverki að gegna í mótun ónæmissvars, sérstaklega þegar kemur að jafnvægis stýringu mismunandi ræsingarferla.
Source: Skemman
Author: Fernanda Rocha
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: T-cell and B-cell Immunology
Subfield: Immunology
Field: Immunology and Microbiology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063962732
