Work

Trúverðugleiki kynningaraðila á samfélagsmiðlum: Hefur hann áhrif á kaup, jákvæða umtalshegðun, vörumerkjatryggð og vörumerkjaskipti?

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áhrifavaldamarkaðssetning hefur tekið breytingum í kjölfar samfélagsmiðla. Áður voru þekktir aðilar í kvikmyndabransanum eða afreksmenn í íþróttum gjarnan notaðir til að kynna vörumerki en í dag hefur það færst í aukana að óþekktari aðilar kynni vörumerki í \ngegnum samfélagsmiðla á borð við blogg, Facebook, Snapchat og Instagram. Rannsóknir hafa sýnt að trúverðugleiki frægra kynningaraðila skipti töluverðu máli þegar litið er til árangurs í áhrifavaldamarkaðssetningu en það hefur ekki verið skoðað í tilfelli kynningaraðila á samfélagsmiðlum. \nTilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif trúverðugleika \nkynningaraðila á samfélagsmiðlum á kaup og þrjár tegundir áætlunar um hegðun, það er jákvæða umtalshegðun, vörumerkjatryggð og vörumerkjaskipti. Aðferðafræði og framkvæmd: Stuðst var við megindlega aðferðafræði. Unnið var með hentugleikaúrtak og mælitækinu var dreift á samfélagsmiðlinum Facebook. Alls svöruðu 376 aðilar spurningunni Hefur þú fylgst með áhrifavöldum á samfélagsmiðlum síðastliðna sex mánuði? játandi en niðurstöður byggja á svörum þeirra. Niðurstöður: Allar tilgátur rannsóknarinnar stóðust. Trúverðugleiki kynningaraðila á \nsamfélagsmiðlum spáði fyrir um hvort fylgjandi hafði keypt vöru eða þjónustu sem fjallað hafði verið um. Trúverðugleiki spáði einnig fyrir um jákvæða umtalshegðun, vörumerkjatryggð og vörumerkjaskipti. Hafa ber í huga að skýringamáttur tölfræðilíkanana var ekki hár og því má áætla að aðrar breytur sem ekki voru mældar í þessari rannsókn hafi einnig áhrif mælda neytendahegðun. Frekari athuganir leiddu í ljós \nað sérfræðings- og aðdráttaraflsundirþáttur trúverðugleika skiptu mestu máli þegar litið var til áhrifa á fylgibreyturnar. \nNytsemi: Rannsóknin hafði bæði fræðilegt og hagnýtt gildi. Hagnýta gildið fólst í því að fyrirtæki og markaðsfólk gæti nýtt niðurstöðurnar við mat á hvaða kynningaraðilar henti best til að fjalla um vörur eða þjónustur sem og til að meta hvaða undirþætti ætti að leggja áherslu á til að árangur verði sem mestur. Fræðilega gildið fólst í því að reynt \nvar að fylla upp í gap í fræðunum sem snýr að trúverðugleika kynningaraðila á samfélagsmiðlum.
Source: Skemman
Author: Sigrún Buithy Jónsdóttir 1988
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071776151
Cites: 85
Cited by:
Related to: 10