Work

Þjónusta íslensku viðskiptabankanna: Tengsl þjónustugæða við árangur og forgangsröðun úrbótaþátta

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þjónusta og þjónustugæði eru þjónustuveitendum mikilvæg til að aðgreina sig frá öðrum, stuðla að ánægju viðskiptavina og byggja upp tryggð þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að skoða tengsl þjónustugæða við árangur í formi tryggðar hjá stærstu viðskiptabönkunum á Íslandi og hvernig mætti forgangsraða úrbótaþáttum almennt og út frá hverjum banka fyrir sig. Niðurstöður rannsóknarinnar byggja á viðhorfskönnun sem send var út vorið 2023. Svörun var góð og fengust 640 gild svör. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu að tryggð mældist hæst hjá viðskiptavinum Landsbankans (m = 3,51; +/- 0,14) og lægst hjá viðskiptavinum Arion banka (m = 3,17; +/- 0,16). Meðaleinkunn tryggðar meðal viðskiptavina Íslandsbanka var 3,20 (+/- 0,13). Niðurstöður fylgnigreiningar sýndu sterk og jákvæð tengsl milli þjónustugæða og árangurs þar sem gæði 1, sem snýr að hefðbundnum þjónustuþáttum hefur sterkari fylgni (r = 0,717) við tryggð en gæði 2 (r = 0,509) sem snýr að stafrænum þáttum. \nTil þess að skoða úrbótaþætti og hvernig megi forgangsraða þeim var meðaleinkunn þjónustuþátta skoðuð út frá fylgnistuðlum við tryggð með fylgnigreiningu og beta stuðlum við tryggð með margvíðri aðhvarfsgreiningu. Þáttur 16 „Starfsfólk veitir mér persónulega þjónustu þegar á þarf að halda“ og þáttur 18 „Opnunartími útibúa hentar mér vel“ voru veikleikar hjá öllum bönkunum almennt þar sem þáttur 18 var afgerandi veikleiki sem bankarnir ættu að taka til athugunar. Úrbótaþáttur Landsbankans var þáttur 18 samkvæmt fylgnigreiningu en aðhvarfsgreiningin leiddi í ljós að sá þáttur væri ekki marktækur (sig = 0,202). Aðhvarfsgreiningin leiddi einnig í ljós að styrkleikar bankans væru þrír þættir sem saman útskýrðu 48% (R2 = 0,48) af breytileikanum í tryggð. Úrbótaþættir Íslandsbanka samkvæmt fylgnigreiningu voru þættir 16 og 18. Aðhvarfsgreiningin leiddi í ljós að fimm þjónustuþættir af tíu útskýrðu 59% (R2 = 0,59) af breytileikanum í tryggð hjá Íslandsbanka þar sem þáttur 18 var marktækur (sig = 0,026) veikleiki sem bankinn ætti að taka til athugunar. Þjónustuþættir 16 og 18 voru veikleikar Arion banka samkvæmt fylgnigreiningu en þeir voru hvorugir marktækir (sig = 0,337; sig = 0,341). Einungis fjórir þjónustuþættir voru marktækir, en líkan Arion banka útskýrði mest af breytileikanum í tryggð samanborið við hina bankana, eða 69% (R2 = 0,59).
Source: Skemman
Author: Ásta Sachi Jónasdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071939716
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10