Work

Efnismarkaðssetning á bloggsíðum. „Ég deili ekki hverju sem er“

Year: 2016
Type: article
Abstract: Árangursríkt markaðsstarf snýr ekki síst að því að sérsníða skilaboð að heppilegum markhópi og auka líkurnar á því að hann sjái þau á réttum tíma í réttu samhengi. Snertifletirnir við þann sem móttekur skilaboðin geta verið margvíslegir en markaðssetning á netinu er ein skilvirkasta leiðin í þessu sambandi, með tilkomu samfélagsmiðla og bættu aðgengi að gögnum um notendur. Fyrirtæki og vörumerki hafa undanfarin ár nýtt sér bloggara í auknum mæli til að koma upplýsingum um vörur og þjónustu á framfæri til síns markhóps. Viðfangsefni rannsóknarinnar var að auka skilning á því hvað knýr lesendur íslenskra blogga áfram til þess að deila vörumerkjatengdu efni áfram á netinu. Framkvæmd var eigindleg rannsókn í formi djúpviðtala við sjö konur. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að til þess að viðmælendur hefðu áhuga á að deila efni sem innihélt skilaboð vörumerkja eða öðru efni, yrði það að vera áhugavert og innihaldsríkt fyrir þá sjálfa. Almennt töldu viðmælendur mestar líkur á að þeir deildu efni sem skipti þá persónulega miklu máli. Tilfinningarík skilaboð voru talin líklegust til árangurs og þá sögðust viðmælendur frekar deila fyndnum eða hneykslanlegum skilaboðum. Viðmælendur upplifðu markaðssetningu á íslenskum bloggsíðum sem mikið áreiti og höfðu neikvætt viðhorf til hennar. Flestir töldu slíka umfjöllun einkennast af gagnrýnislausum lofræðum um vörur eða þjónustu og voru allir sem einn sammála um að slík efnistök skertu trúverðugleika þess sem setti efnið fram. Niðurstöðurnar kallast á við rannsóknir á sviði efnismarkaðssetningar sem leggja áherslu á að sköpun efnis sem er viðeigandi, áhugavert og einstakt fyrir viðskiptavini sé lykillinn að árangursríkri markaðsfærslu á netinu.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Marketing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2292639366
FWCI:
Cites: 44
Cited by:
Related to: 10